Búminjasafn á Hvanneyri
Föstudaginn 05. maí 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti sér ekki ástæðu til að stöðva eða fresta afgreiðslu þessa máls. Hér er um tvö mál að ræða sem legið hafa fyrir þinginu í allan vetur. Ég tel að þingmenn hafi gert upp við sig hvorn kostinn þeir kjósa með því að þessi afgreiðsla hefur nú farið fram í hv. félmn. svo að ég legg til að þetta mál hljóti eðlilega afgreiðslu hér í Sþ.