Ástandið í framhaldsskólunum
Föstudaginn 05. maí 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Ég vil benda hv. 18. þm. Reykv. á að ég hef ekki stöðvað neina umræðu. Ég hef reynt að halda mig við það að hér var leyfð hálftíma umræða. Þingmanninum er að sjálfsögðu heimilt að fara fram á utandagskrárumræðu um sama mál og þá skv. 2. málsl. 32. gr. annaðhvort á morgun eða í næstu viku, en á það var fallist að þessi umræða stæði í hálftíma og þar við verður að sitja.