Ástandið í framhaldsskólunum
Föstudaginn 05. maí 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill upplýsa að þessi ákvörðun er ekki á valdi forseta eins. Ég mun nú gera hlé á fundinum í 5 mínútur og óska eftir að formenn þingflokka komi og ræði við forseta. --- [Fundarhlé.]
    Forseti hefur haldið fund með öllum formönnum þingflokka og sex þingflokksformenn töldu afdráttarlaust að úrskurður forseta væri réttur og þingflokksformaður Kvennalistans sætti sig við þá niðurstöðu.
    Ég ítreka það, sem ég sagði áðan, að vitaskuld stendur það hverjum einum opið að óska eftir annarri umræðu um þetta mál utan dagskrár, en þessari umræðu er óumdeilanlega lokið.