Ástandið í framhaldsskólunum
Föstudaginn 05. maí 1989

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Það versnar mjög ástandið ef það er upplýst að forseti skýrir út á allt annan hátt þetta mál en sá sem eftir leitaði umræðunni og upplýst er að það er forseti sem endanlega ákvað að hér yrði aðeins hálftíma umræða um þetta mál og lýsir nokkuð vel menntastefnu hæstv. forseta. Ég tel að ekki þurfi að hafa fleiri orð um það.