Aðfaranám til ökuprófs
Föstudaginn 05. maí 1989

     Frsm. allshn. (Guðni Ágústsson):
    Hæstv. forseti. Á þskj. 1010 er nál. um till. til þál. um aðfararnám til ökuprófs frá allshn. Nefndin hefur fjallað um till. og borist umsagnir frá Ökukennarafélagi Íslands og Umferðarráði. Í ljósi þess að nýlega lauk störfum nefnd sem dómsmrh. skipaði 4. okt. 1988 til að fjalla um og gera tillögur um framtíðarskipan ökukennslu og ökuprófa í landinu leggur nefndin til að till. verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Undir þetta nál. skrifa allir nefndarmenn allshn.