Veiting ríkisborgararéttar
Föstudaginn 05. maí 1989

     Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
    Virðulegi forseti. Þetta frv. hefur áður verið til afgreiðslu hér í hv. Nd., en Ed. hefur gert á því eina breytingu, tekið inn eina umsókn sem fullnægir þeim skilyrðum sem sett eru, og það eru ekki gerðar við það athugasemdir og lagt til að frv. verði samþykkt.