Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Svo bar til í gær þegar þessi till. var til umræðu að hv. 1. þm. Reykv. óskaði eftir því að umræðu yrði frestað vegna fjarveru ráðherra. Nú er umræddur 1. þm. Reykv. ekki enn kominn og ég hlýt að bera það undir hv. flm. tillögunnar hverjar skoðanir hann hefur á að fresta enn málinu.