Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Þingmönnum til upplýsingar, þar sem þetta mál á sér langa sögu hér í þingsölum, vil ég skýra frá hverjir hafa áður tekið til máls svo að það sé skýrt. Hv. frsm. atvmn., Árni Gunnarsson, hefur talað tvisvar, hv. 3. þm. Norðurl. v. hefur talað tvisvar, en aðrir hafa einungis talað einu sinni. Tekur nú til máls öðru sinni hv. 1. þm. Reykv.