Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Eftirfarandi bréf hefur borist:
    ,,Steingrímur Hermannsson forsrh. hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Reykjaneskjördæmi, Níels Árni Lund, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Óli Þ. Guðbjartsson,

forseti Nd.``

    Þar sem Níels Árni Lund hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili þarf kjörbréf hans ekki rannsóknar við og er hann boðinn velkominn til starfa á Alþingi.