Ríkisprentsmiðjan Gutenberg
Mánudaginn 08. maí 1989

     Frsm. iðnn. (Stefán Guðmundsson):
    Herra forseti. Ég tala hér fyrir nál. iðnn. þessarar deildar, en hún fjallaði um frv. til l. um stofnun hlutafélags um ríkisprentsmiðjuna Gutenberg á þskj. 770.
    Iðnn. var sammála um að mæla með samþykkt frv. Undir nál. skrifa Karl Steinar Guðnason, Þorv. Garðar Kristjánsson, Margrét Frímannsdóttir, Stefán Guðmundsson, Guðmundur Ágústsson, Jón Helgason og Eyjólfur Konráð Jónsson.