Tekjustofnar sveitarfélaga
Þriðjudaginn 09. maí 1989

     Geir H. Haarde:
    Herra forseti. Þessi tillaga snýst um að fella niður undanþágu þá sem komin er inn í frv. og undanþiggur sláturhús og mjólkurbú greiðslu aðstöðugjalda. Það verður forvitnilegt að sjá hvort landbúnaðinum hefur bæst nýr stuðningsaðili hér á Alþingi í dag í formi þingmanna Alþfl. En ég segi já.