Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 09. maí 1989

     Geir H. Haarde:
    Herra forseti. Þingmenn Sjálfstfl. hafa ákveðið að greiða ekki atkvæði um þessa grein frv. í þessari umræðu. Við höfum dregið okkar tillögu um að vísa málinu til ríkisstjórnar til baka til 3. umr. Við viljum láta reyna á þær brtt. sem hér eru fyrir hendi fyrst og munum halda okkur við okkar frávísunartillögu þegar þar að kemur. Ég greiði ekki atkvæði.