Kvikmyndin Lífsbjörg í norðurhöfum
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Virðulegi forseti. Af gefnu tilefni skal tekið fram að menntmrn. hefur ekki eftir 28. sept. 1988 lagt fram fé til myndar þessarar né heldur hefur hún hlotið náð fyrir augum stjórnar Kvikmyndasjóðs. Tvisvar sinnum hefur verið óskað eftir því að Kvikmyndasjóður styrkti gerð myndarinnar en stjórn sjóðsins hefur ekki talið sér fært að verða við þeim beiðnum.