Kvikmyndin Lífsbjörg í norðurhöfum
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Margrét Frímannsdóttir:
    Virðulegi forseti. Það er ekki bein spurning vegna þessarar 400 þús. kr. fjárveitingar í þessa verðugu nýjung í málefnum sjávarútvegs, heldur langar mig til þess að vita hvort þetta sé e.t.v. viðtekin venja hjá ráðuneytum að styrkja kvikmyndagerð og þá með tilliti til þess að það eru frekar rýrar fjárveitingar í Kvikmyndasjóð.