Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Danfríður Skarphéðinsdóttir:
    Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið í máli mínu við umræður um þetta mál get ég tekið undir þær tilraunir sem verið er að gera í rétta átt, en tel þó ekki nóg að gert eins og fram kemur í þeim brtt. sem ég er meðflm. að fyrir hönd okkar í Kvennalistanum. Ég greiði ekki atkvæði.