Framhaldsskólar
Föstudaginn 12. maí 1989

     Frsm. 2. minni hl. menntmn. (Halldór Blöndal):
    Herra forseti. Mig vantar gögn sem nefndinni bárust. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en á síðustu stundu að ég hefði gleymt möppu minni heima og hef verið að reyna að gera ráðstafanir til þess að ná í þessi gögn en þar sem starfsfólk skildi ekki almennilega það sem ég átti við óska ég eftir að það verði gert 5 mínútna hlé á umræðunni svo ég geti náð í viðkomandi gögn.