Þjóðminjalög
Þriðjudaginn 16. maí 1989

     Ragnar Arnalds:
    Herra forseti. Frv. til þjóðminjalaga er að koma hér fyrir deildina í fjórða sinn eftir að hafa verið til umfjöllunar í Ed. í millitíðinni. Örlítil lagfæring var gerð á frv. þar og hefur menntmn. deildarinnar litið á þá breytingu og mælir eindregið með því að frv. verði samþykkt og gert að lögum eins og það liggur nú fyrir.