Tekjustofnar sveitarfélaga
Miðvikudaginn 17. maí 1989

     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Eins og fram hefur komið varð ekki samstaða innan félmn. um þá brtt. sem flutt er á þskj. 1194. Hv. 14. þm. Reykv. Guðmundur H. Garðarsson og ég munum ekki greiða þessari brtt. atkvæði. Við erum á móti henni og leggjum til að frv. verði samþykkt eins og það kom beint frá Nd.