Þingfararkaup alþingismanna
Miðvikudaginn 17. maí 1989

     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Í þingskjalinu segir að það sé flutt í fullu samráði við þingforseta þessarar deildar. Það er upplýst af einum af þingforsetum deildarinnar að þetta er rangt, þetta eru ósannindi. Þar af leiðandi hefur deildin verið plötuð. Ég tel að með því sé verið að vísa fölsku plaggi til nefndar og 2. umr. og því segi ég nei.