Jöfnun á raforkukostnaði
Fimmtudaginn 18. maí 1989

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
    Áður en lengra er haldið með dagskrá vill forseti minna á að í upphafi fundar sem verður að loknum þessum fundi fer fram utandagskrárumræða um stöðu landbúnaðarmála og það er samkvæmt hálftímareglunni. Þetta vildi forseti aðeins minna á og ítreka frekar.