Fyrirspyrjandi (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góð og skýr svör. Ég álít að það verði öllum áhugamönnum um sjónvarp á Siglufirði og Stykkishólmi fagnaðarefni að tæknilegum útbúnaði verði komið fyrir til að útsendingar þessarar stöðvar náist á þessu ári og ég er handviss um að með tilkomu fjölbreyttara efnis með tæknibúnaði í Hvanneyrarskál verði aftur fjör í skálinni eins og var í gamla daga.