Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Ég vil, eins og reyndar á síðasta þingi, taka undir þessa þáltill. sem hér liggur fyrir um þjónustumiðstöð fyrir heyrnarskerta og er flutt af Þórhildi Þorleifsdóttur hv. 18. þm. Reykv. og fleiri kvennalistakonum.
Ég held að við þurfum ekki að fjölyrða um það frekar en málefni heyrnarskerta eru mjög brýn. Þetta er ekki mjög stór hópur en þetta er fólk sem býr við mjög alvarlegar aðstæður og það er brýnt að leitað verði leiða til úrbóta. Í dag eru fjölmargir möguleikar til að hjálpa þessu fólki með ýmsum hætti. Það hafa verið framleidd margs konar hjálpartæki og það eru mörg önnur ráð til að þetta fólk geti notið þess að búa í nútímaþjóðfélagi. Ég ætla ekki að fjölyrða sérstaklega um það en vil eindregið vonast til þess að þetta mál fái góða og skjóta afgreiðslu. Það er von mín að málefni heyrnarskertra verði rædd meira í framtíðinni en hér hefur verið gert og heyrnarskertum verði gert kleift að vera fullgildir þjóðfélagsþegnar á Íslandi. Ég vil að öðru leyti þakka hv. flm. fyrir þessa þál. og vona að hún fái afgreiðslu.