Tekjustofnar sveitarfélaga
Föstudaginn 19. maí 1989

     Hjörleifur Guttormsson:
    Herra forseti. Ég vísa til þess, sem fram kom í umræðu af minni hálfu, að ég tel eðlilegt að fram fari endurskoðun þessa máls sem hér eru greidd atkvæði um þegar á næsta þingi og þá með tilliti til bæði skattlagningar á þau fyrirtæki sem í hlut eiga svo og varðandi verðlagningu á afurðunum, og í trausti þess að það verði gert segi ég nei.