Manneldis-og neyslustefna
Föstudaginn 19. maí 1989

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Þar sem Íslendingar eru nálægt heimsmeti hvað meðalaldur snertir, hafa verið þar með gull- eða silfurverðlaun að undanförnu, og mér er ekki ljóst til hvers manneldisstefna hæstv. heilbrmrh. leiðir né fullkomlega ljóst hvaða meðul hann ætlar að hafa til að framkvæma hana, þrátt fyrir að hæstv. sjútvrh. hefur óbrigðull tekið undir, treysti ég mér ekki til að greiða atkvæði.