Ályktunarfær þingfundur
Föstudaginn 19. maí 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti áttar sig ekki alveg á því sem hér kom fram. Atkvæði fóru áðan þannig að 20 sögðu já. Atkvæði greiddu ekki en svöruðu nafnakalli 12. Meira en helmingur hv. þm. í sameinuðu þingi tók þátt í atkvæðagreiðslunni. ( VI: Það hefur enginn sagt annað.) ( ÓÞÞ: Úrskurður forseta var réttur.)