Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna orða hv. ræðumanns vill forseti taka fram að eins og honum mun vafalaust kunnugt tókst samkomulag milli formanna þingflokkanna um hvaða mál skyldu hljóta afgreiðslu við þinglok og hver yrðu að bíða og þetta mál var eitt þeirra þannig að forseti tekur þetta mál út af dagskrá með fullri vitund og vilja allra hv. formanna þingflokka.