Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Þar sem forseti hafði tekið 5. dagskrármál út af dagskrá getur dagskrártillaga sú er hv. 2. þm. Vestf. lagði fram ekki komið til atkvæða á þessum fundi.
    Orðið hefur að samkomulagi að til nýs fundar verði boðað þegar að loknum þessum fundi og á þeim fundi verði eitt mál á dagskrá: Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins, þáltill., 500. mál Sþ., þskj. 1055.