Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins
Laugardaginn 20. maí 1989

     Páll Pétursson:
    Frú forseti. Ég leyfi mér að flytja skriflega brtt. sem ég tel að geti orðið til þess að eining skapist um málið. Tillaga þessi er skrifleg og of seint fram komin og þarf afbrigða við. Ég legg til að málinu verði vísað til síðari umræðu og tel að málið þurfi ekki að fara til nefndar og komi brtt. til atkvæða við síðari umræðu.