Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.

1988. -- 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. -- 13 . mál.


Sþ.
13. Fyrirspurn


til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um mengun við fiskeldi.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.


1.     Hverjir fjalla um mengun við fiskeldi þegar undirbúin eru starfsleyfi fyrir fiskeldisstöðvar?
2.     Hvaða reglur hafa verið settar um mengunarvarnir vegna fiskeldis, þar með taldar um förgun úrgangs?
3.     Hvernig er háttað eftirliti varðandi mengun frá fiskeldi?
4.     Hvaða reglur gilda um notkun lyfja og rotvarnarefna við fiskeldi?
5.     Er talin hætta á að þörungablómi (eitraðar þörungategundir) geti valdið tjóni í fiskeldi hérlendis? Ef svo er, hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar til að varna því og fylgjast með þeirri hættu?
6.     Hvaða rannsóknir fara helstar fram eða eru ráðgerðar hérlendis vegna mengunarhættu við fiskeldi?



Skriflegt svar óskast.