Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.

1988. -- 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. -- 72 . mál.


Ed.
74. Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um eiturefni og hættuleg efni, nr. 52/1988.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988.)


1. gr.

    1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra skipar sex menn í eiturefnanefnd til ráðuneytis um framkvæmd laga þessara. Eru þeir skipaðir til sex ára í senn. Einn nefndarmanna skal vera eiturefnafræðingur (toxicolog), annar skal vera lyfjafræðingur (candidatus pharmaciae), þriðji skal vera efnafræðingur, fjórði skal vera efnaverkfræðingur, fimmti skal vera heilsufræðingur eða maður með heilsufræðilega þekkingu og sjötti skal vera sérfróður um notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði, garðyrkju og til útrýmingar meindýra, tilnefndur af landbúnaðarráðuneyti. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi nefndarmanna. Falli atkvæði jöfn í nefndinni ræður atkvæði formanns.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.

    Ný lög um eiturefni og hættuleg efni voru samþykkt á 110. löggjafarþingi 1988. Í 2. gr. laganna er ákvæði um eiturefnanefnd og þær kröfur sem gerðar eru til einstakra nefndarmanna. Í greininni er gert ráð fyrir því að einn nefndarmanna skuli vera efna- eða verkfræðingur með sérþekkingu á notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði, garðyrkju og til útrýmingar meindýra og skuli hann tilnefndur af landbúnaðarráðuneyti. Vakin hefur verið athygli á því að ástæðulaust sé að gera kröfur um það að hlutaðeigandi sé efna- eða verkfræðingur því nægjanlegt sé að um sé að ræða mann með sérþekkingu á notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði, garðyrkju og til útrýmingar meindýra. Var reyndar gert ráð fyrir slíkri skipan í tillögum stjórnarskipaðrar nefndar sem samdi frumvarp að nýjum lögum um eiturefni og hættuleg efni. Þar sem ekki var ætlunin að breyta út frá tillögu nefndarinnar
varðandi kröfur um sérþekkingu manna í eiturefnanefnd verður ekki annað séð, en hér sé um misfellu að ræða sem ráðuneytið vill leiðrétta.
    Ofangreind misfella kemur ekki að sök fyrr en frá og með næstu áramótum þar sem gert er ráð fyrir því í ákvæði til bráðabirgða í lögum um eiturefni og hættuleg efni að gildandi skipun manna í eiturefnanefnd haldist til ársloka 1988. Frá og með þeim tíma þarf hins vegar að vera þannig um hnútana búið að eiturefnanefnd geti starfað í samræmi við þá starfshætti, sem hlutaðeigandi aðilar telja besta, og er frumvarp þetta fram komið til þess að koma þeirri skipan á.