Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.

1988. -- 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. -- 184 . mál.


Ed.
215. Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 57/1988.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988.)

1. gr.

    2. málsl. 42. gr. laganna orðast svo:
    Ákvæði III. og VIII. kafla laganna auk ákvæða 7. og 8. gr. skulu ekki koma til framkvæmda fyrr en 1. janúar 1990. Þrátt fyrir 4., 5., 6., 8., 9., 12. og 13. tölul. 41. gr. skulu þau ákvæði þar tilgreindra laga, er fjalla um fjármál og kostnaðarskiptingu þeirra skóla, sem þar er fjallað um, og hlutverk og skipan skólanefnda þeirra, halda gildi sínu fram til 1. janúar 1990.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.

    Þegar frumvarp til laga um framhaldsskóla var samið var gert ráð fyrir breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga þannig að á móti auknum kostnaði ríkisins við rekstur framhaldsskóla kæmu lægri útgjöld vegna reksturs grunnskólans. Lög um breytta verkaskiptingu hafa ekki náð fram að ganga og er málið til meðferðar í ríkisstjórn. Vegna þessa þykir nauðsynlegt að fresta gildistöku III. og VIII. kafla til 1. janúar 1990. Eðlilegt þykir að 7. og 8. gr. fylgi III. og VIII. kafla, enda ekki grundvöllur fyrir breyttu starfi skólanefnda fyrr en þeir kaflar hafa tekið gildi. Með vísan til ofangreinds er kveðið á um það í 2. málsl. 1. gr. laga þessara að þau lagaákvæði áður gildandi laga um fjármál framhaldsskóla og kostnaðarskiptingu, sem og skipan og hlutverk skólanefnda, haldi gildi sínu þar til lögin um framhaldsskóla koma að fullu til framkvæmda.