Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá
upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.
1988--89. -- 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. --
308
. mál.
Sþ.562. Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um undirritun og staðfestingu ýmissa sáttmála Evrópuráðsins.
Frá Ragnhildi Helgadóttur, Guðmundi G. Þórarinssyni, Kjartani Jóhannssyni,
Ragnari Arnalds, Hreggviði Jónssyni og Kristínu Halldórsdóttur.
1. Hvaða sáttmála Evrópuráðsins hefur Ísland staðfest?
2. a. Hvaða sáttmála Evrópuráðsins hefur Ísland undirritað en ekki staðfest?
. b. Hverjar eru ástæður þess að Ísland hefur ekki staðfest sáttmála sem það hefur undirritað og hvaða ástæða varðar hvern sáttmála um sig?
3. a. Hvaða sáttmála hefur Ísland hvorki undirritað né staðfest?
. b. Hvaða ástæða er til þess að sáttmálar hafa hvorki verið undirritaðir né staðfestir af Íslands hálfu? Ástæða óskast tilgreind um hvern sáttmála fyrir sig.
Skriflegt svar óskast.