Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá
upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.
1988--89. -- 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. --
286
. mál.
Sþ.756. Svar
landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Geirs Gunnarssonar um verðjöfnunargjald af innveginni mjólk.
Leitað hefur verið til Framleiðsluráðs landbúnaðarins vegna fyrirspurnarinnar. Hér á eftir fer að mestu greinargerð sem borist hefur frá Framleiðsluráði, en þar koma fram ítarleg svör við báðum spurningum fyrirspyrjanda.
Uppgjör Verðmiðlunarsjóðs mjólkur miðaðist við almanaksárið allt þar til lög nr. 46/1985, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, tóku gildi en þá var farið að nota verðlagsárið sem reikningsár. Til að halda samræmi hafa tekjur verðlagsáranna 1985/1986--1987/1988 verið sundurgreindar eftir almanaksárum og vaxtatekjur látnar fylgja því almanaksári sem seinni hluti verðlagsárins tilheyrir. Tekjur Verðmiðlunarsjóðs hafa á umræddu tímabili komið af gjaldi á innvegna mjólk, af gjaldi lögðu á selda léttmjólk og af vaxtatekjum.
Tafla 1.
Tekjur Verðmiðlunarsjóðs mjólkur árin 1982--1988
færðar til verðlags 1988 með lánskjaravísitölu.
(Í þús. kr.)
Gjald af Gjald af
innveginni seldri Vaxta-
Ár mjólk léttmjólk tekjur Samtals
1982 109.790 34.449 144.239
1983 94.713 28.823 6.545 130.081
1984 120.265 34.807 5.468 160.540
1985 184.432 36.143 220.575
1986 155.100 620 155.720
1987 258.380 2.332 260.712
1988 275.795 1.479 277.274
Frá ársbyrjun 1982 til 1. mars 1984 var verðmiðlunargjaldið um 2% af óniðurgreiddu heildsöluverði mjólkur en hækkaði þá og komst í rúm 4% 1. mars 1986. Síðan lækkaði það 1. júní 1986 í tæp 2% af óniðurgreiddu heildsöluverði en hækkaði um haustið og hefur nú um tveggja ára skeið verið í hámarki, eða 5,5% af óniðurgreiddu heildsöluverði.
Frá 1. sept. 1985 var gjald af seldri léttmjólk tekið til annarra nota en verðmiðlunar og hefur svo verið síðan.
Alls störfu 17 mjólkursamlög á þessu tímabili og var meðalársinnvigtun 107,8 milljónir lítra, en minnst var innvigtunin á árinu 1988 eða 102,7 milljónir lítra. Hjá fimm samlögum er meðalinnvigtun þessi ár undir 1 milljón lítra á ári en það er á Patreksfirði, Þórshöfn, Vopnafirði, Neskaupstað og Djúpivogi.
Greiðslur úr Verðmiðlunarsjóði hafa á tímabilinu fyrst og fremst verið háðar afkomu
(verðmiðlunarþörf) mjólkursamlaganna. Auk þess hafa verið inntar af hendi greiðslur vegna jöfnunar flutningskostnaðar að samlagi, kostnaðar við lántökur og almenns rekstrarkostnaðar en þær greiðslur eru ekki taldar hér með. Þá ber að geta þess að jöfnun á flutningskostnaði vegna tilfærslu mjólkurafurða milli sölusvæða er færð á sérreikning, millisvæðaflutningsreikning, og koma tekjur og gjöld vegna þessa því ekki inn í uppgjör Verðmiðlunarsjóðs.
Tafla 2.
Samþykkt verðmiðlunarþörf einstakra mjólkursamlaga fyrir rekstrarárin
1981--1987 færð til verðlags 1988 með lánskjaravísitölu.
(Í þús. kr.)
Mjólkursamlag 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987
Patreksfjörður ..... 8.667 15.710 11.962 10.788 13.627 15.612 10.941
Ísafjörður ......... 8.111 10.658 6.810 4.004 8.786 6.852 7.883
Hvammstangi ........ 4.700 19.632 10.810 0 0 0 0
Blönduós ........... 13.382 17.794 26.035 12.808 14.655 15.365 13.553
Sauðárkrókur ....... 0 7.498 19.718 0 0 0 0
Akureyri ........... 73.843 55.166 127.890 46.848 4.728 0 0
Húsavík ............ 10.901 9.625 6.827 0 0 0 8.206
Þórshöfn ........... 4.855 4.811 6.452 4.580 2.560 4.850 5.017
Vopnafjörður ....... 8.298 10.314 10.535 7.960 10.869 8.827 8.284
Egilsstaðir ........ 17.406 26.825 29.744 21.670 14.684 14.714 14.231
Neskaupstaður ...... 6.017 11.439 10.813 5.466 6.323 8.224 8.251
Djúpivogur ......... 2.676 3.495 4.159 5.051 3.069 6.050 3.178
Höfn ............... 9.833 11.006 15.701 7.298 8.068 6.171 8.706
4 ms. á 1. svæði ... 0 0 0 0 5.199 185.760 163.844
--------- ------ ------ --------- ------ ------ -------
168.689 203.973 287.456 126.473 92.568 272.425 252.094
Þar sem ekki liggja fyrir ársreikningar mjólkursamlaga fyrir 1988 er ekki unnt að greina frá verðmiðlunarþörf samlaganna á því ári. Þá er og rétt að geta þess að greiðslur Verðmiðlunarsjóðs eru ávallt nokkuð á eftir tímanum. Þannig var ekki að fullu lokið uppgjöri við samlögin fyrir 1987 fyrr en í september 1988.
Þegar verðmiðlunarþörfin er skoðuð miðað við innvegið magn hjá hverju samlagi kemur í ljós að mörg minnstu samlögin hafa verið með mikla verðmiðlunarþörf allt tímabilið.
Tafla 3.
Verðmiðlunarþörf mjólkursamlaga árin 1981--1987 færð til
verðlags 1988 með lánskjaravísitölu.
(Í krónum á innveginn lítra.)
Mjólkursamlag 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987
Patreksfjörður ..... 11,03 21,05 14,65 13,32 14,00 15,33 11,37
Ísafjörður ......... 5,92 7,87 4,62 2,68 5,49 3,99 4,79
Hvammstangi ........ 1,85 7,91 4,32 0,00 0,00 0,00 0,00
Blönduós ........... 3,43 4,52 6,41 3,19 3,46 3,65 3,38
Sauðárkrókur ....... 0,00 0,99 2,41 0,00 0,00 0,00 0,00
Akureyri ........... 3,48 2,58 5,82 2,11 0,21 0,00 0,00
Húsavík ............ 1,68 1,44 0,98 0,00 0,00 0,00 1,34
Þórshöfn ........... 21,20 19,66 24,42 17,07 9,94 18,99 22,17
Vopnafjörður ....... 14,90 17,13 15,56 12,32 15,80 12,65 13,27
Egilsstaðir ........ 7,18 10,69 11,45 8,14 5,18 5,12 5,12
Neskaupstaður ...... 9,83 18,46 18,85 9,84 10,77 12,81 13,27
Djúpivogur ......... 9,30 11,18 11,71 12,68 6,37 10,67 6,18
Höfn ............... 6,17 6,66 9,34 4,24 4,48 3,59 5,74
4 ms. á 1. svæði ... 0,00 0,00 0,00 0,00 0,08 3,29 2,95
--------- ------ ------ --------- ------ ------ -------
1,64 1,95 2,70 1,17 0,80 2,48 2,35
Til fróðleiks er rétt að geta þess að meðaltal vinnslu- og heildsölukostnaðar samkvæmt ákvörðun fimmmannanefndar var 11,82 kr. á lítra nýmjólkur á árinu 1988.