Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá
upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.
1988--89. -- 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. --
444
. mál.
Nd.804. Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
Flm.: Ragnhildur Helgadóttir, Geir H. Haarde, Birgir Ísl. Gunnarsson,
Pálmi Jónsson.
1. gr.
Við 81. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðist svo:
Á sama hátt skal við álagningu eignarskatts skipta eignarskattsstofni eftirlifandi maka og reikna eignarskatt hans eins og hjá hjónum væri.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og gilda við álagningu eignarskatts á árinu 1989 vegna eigna í lok ársins 1988.
Greinargerð.
Markmið þessa frumvarps er að stíga skref til að draga úr því ranglæti sem hin nýju eignarskattsákvæði skattalaga hafa í för með sér. Samkvæmt lögunum, sem nú gilda og sett voru að tillögu ríkisstjórnarinnar í vetur, getur fráfall maka haft það í för með sér að ekkja eða ekkill þarf að greiða af sömu eign meira en tvisvar sinnum hærri eignarskatt en gert var fyrir andlát makans.
Ákvæðið um 2,7% eignarskatt af sjö millj. kr. eignarskattsstofni veldur því að fjöldi ekkna og ekkla, sem lenti neðar í skattstiganum áður, meðan eignin skiptist milli hjóna, þarf nú allt í einu að greiða af eignarskattsstofni sínum tvöföldum, t.d. ef viðkomandi situr í óskiptu búi. Þar við bætist hækkun á eignarskattsstofni um 2,5 millj. kr., en það er sú upphæð sem er eignarskattsfrjáls hjá hverjum greiðanda. Þessi frádráttur sem var tvöfaldur fyrir hjón verður nú allt í einu einfaldur og veldur því skyndihækkun skatts af sömu eign. Flutningsmenn telja brýnt að leiðrétta þetta.