Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.

1988--89. -- 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. -- 359 . mál.


Sþ.
972. Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn Matthíasar Á. Mathiesen um útflutning á ísfiski í gámum.

    1. Veitt leyfi fyrir ísfiski í gámum frá áramótum til 22. apríl sl., þ.e. þorski, ýsu, karfa og ufsa voru eins og hér greinir.

    Til Bretlands .............        1104 gámar.
    Til Þýskalands ............        290 gámar.

    2.1. Eftirtaldir útgerðar-, fiskvinnslu- og fiskútflutningsaðilar víðs vegar á landinu hafa sótt um og fengið leyfi umrætt tímabil:
    Andri hf., Reykjavík.
    Asiaco hf., Reykjavík.
    Álftfirðingur hf., Súðavík.
    Baldur hf., Ísafirði.
    Bergur-Huginn sf., Vestmannaeyjum.
    Bergvík VE, Vestmannaeyjum.
    Byr hf., Flateyri.
    Borgey hf., Höfn í Hornafirði.
    Búðarnes hf., Ísafirði.
    Búlandstindur hf., Djúpavogi.
    Einar Guðfinnsson hf., Bolungarvík.
    Eir hf., Ísafirði.
    Emma hf., Vestmanneyjum.
    Fáfnir hf., Ísafirði.
    Fiskiðja Sauðarkróks hf., Sauðárkróki.
    Fiskmat Grindavíkur, Grindavík.
    Fiskmiðlun Norðurlands hf., Dalvík.
    Frosti hf., Súðavík.
    Færabakur hf., Stöðvarfirði.
    Gámar hf., Stöðvarfirði.
    Gámavinir sf., Vestmannaeyjum.
    Grandi hf., Reykjavík.
    Guðmundur Á. Hólmgeirsson, Húsavík.
    Guðmundur Runólfsson, Grundarfirði.
    Gunnar Ólafsson, Garðabæ.
    Gunnar Ólafsson, Vestmannaeyjum.
    Gunnar I. Hafsteinsson, Reykjavík.
    Gunnvör hf., Ísafirði.
    Göltur hf., Reykjavík.
    Haförninn hf., Akranesi.
    Haraldur Böðvarsson & Co. hf., Akranesi.

    Heimaskagi hf., Akranesi.
    Hinrik Kristjánsson, Flateyri.
    Hlaðsvík hf., Suðureyri.
    Hraðfrystihús Breiðdælinga, Breiðdalsvík.
    Hraðfrystihús Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfirði.
    Hraðfrystihús Stöðvarfjarðar, Stöðvarfirði.
    Hrellir hf., Höfn í Hornafirði.
    Hrönn hf., Ísafirði.
    Hvaleyri hf., Hafnarfirði.
    Innkaupadeild LÍÚ, Reykjavík.
    Ísblik hf., Akranesi.
    Ísfang hf., Ísafirði.
    Íslandssíld hf., Hafnarfirði.
    Íslenska umboðssalan hf., Reykjavík.
    Íslenskur gæðafiskur, Keflavík.
    Íslenskur nýfiskur hf., Reykjavík.
    Íslenska útflutningsmiðstöðin hf., Reykjavík.
    Jóhann Guðbrandsson, Keflavík.
    Jón Ásbjörnsson hf, Reykjavík.
    Kaupfélag Önfirðinga, Flateyri.
    Kleifar hf., Vestmannaeyjum.
    MARK hf., Egilsstöðum.
    Miðfell hf., Ísafirði.
    Nes hf., Reykjavík.
    Nesfiskur hf., Reykjavík.
    Ness hf., Neskaupstað.
    Neysluvörur hf., Hafnarfirði.
    Njáll hf., Reykjavík.
    Norðurtangi hf., Ísafirði.
    Rækjuvinnslan hf., Hnífsdal.
    Samband íslenskra samvinnufélaga, Reykjavík.
    Samherji hf., Akureyri.
    Samtog hf., Vestmannaeyjum.
    Seifur hf., Reykjavík.
    Sigurborg hf., Reykjavík.
    Síldarvinnslan hf., Neskaupstað.
    Skipaafgreiðsla Sigurðar Þorgeirssonar, Fáskrúðsfirði.
    Skipaafgreiðsla Vestmannaeyja, Vestmannaeyjum.
    Skipaþjónusta Suðurlands sf., Þorlákshöfn.
    Sólborg hf., Fáskrúðsfirði.
    Stefnir hf., Reykjavík.
    Stígandi hf., Hafnarfirði.
    Sund hf., Ísafirði.
    Svanur hf., Reykjavík.
    Sæhamar hf., Vestmannaeyjum.
    Sölusamband Vestfjarða, Patreksfirði.
    Útgerðarfélag Flateyrar, Flateyri.

    Útgerðarfélag Skagfirðinga, Skagaströnd.
    Útgerðarfélagið Barðinn, Reykjavík.
    Útgerðarfélagið Drífa hf., Vestmannaeyjum.
    Vinnslustöðin hf., Vestmannaeyjum.
    Vísir hf., Grindavík.
    Völusteinn hf., Bolungarvík.
    Þormóður rammi hf., Siglufirði.
    Þorsteinn hf., Ísafirði.

    2.2. Vikuleg úthlutun í gámum varð eins og hér greinir:

        Í viku    Bretland    Þýskaland
        2     66     13
        3     55     12
        4     65     28
        5     67     28
        6     76     31
        7     65     18
        8     76     29
        9     88     29
        10     98     33
        11     66     0
        12     68     26
        13     74     17
        14     96     10
        15     88     9
        16     56     7
        ------    ---------    ------
            1104     290


    3.1. Ráðuneytið hefur haft eftirtalin atriði til viðmiðunar við úthlutun leyfa til útflutnings á ísfiski í gámum:
a.     Lögð hefur verið áhersla á að veita helst öllum umsækjendum einhverja úrlausn vikulega, sem þó hefur ekki ávallt tekist þegar ásóknin hefur verið hvað mest.
b.     Tekið hefur verið tillit til stærðar veiðiskipa og fjölda á vegum viðkomandi útflytjenda.
c.     Litið hefur verið til þess hvaða verkunaraðstöðu útgerð eða útflytjandi hafi í landi til að koma afla í vinnslu.
d.     Tillit hefur orðið að taka til forgangs ísfisklandana fiskiskipa sem Landssamband íslenskra útvegsmanna hefur tekið ákvarðanir um og hefur svigrúm til fiskútflutnings í gámum þrengst sem því nemur, en hlutur skipa í nefndum útflutningi hefur aukist sem af er þessu ári miðað við sama tíma í fyrra.
    Til frekari upplýsinga skal þess getið hér að fyrstu þrjá mánuði þessa árs nam hlutur skipanna í ísfiskútflutningnum til Þýskalands 73,7% á móti 60,3% á sama tíma í fyrra en til Englands 30% á móti 23% á sama tíma í fyrra.

    3.2. Hinn 6. október 1988 var gefin út svofelld fréttatilkynning frá utanríkisráðuneytinu sem skýrir stefnu ráðuneytisins í þessum málum:
    ,,Á undanförnum mánuðum hefur utanríkisráðuneytið í samvinnu við hagsmunasamtök í sjávarútvegi unnið að því að koma betra skipulagi á útflutning á óunnum fiski. Í því skyni var fyrirkomulagi varðandi leyfi til útflutnings á óunnum þorski, ýsu, karfa og ufsa breytt þann 1. júlí sl. Þeim aðilum, er hugðust flytja út þessar tegundir, var gert að sækja um leyfi til útflutnings árdegis á föstudegi í næstu viku á undan þeirri, sem útflutningur var fyrirhugaður, á grundvelli laga nr. 4 frá 11. janúar 1988, um útflutningsleyfi o.fl.
    Til að tryggja betri upplýsingar um ástand og horfur á þessum mörkuðum hefur ráðuneytið leitað eftir samstarfi við aðila er þar starfa. Ráðgert er að ráðuneytið fái vikulega ráðgjöf varðandi það magn sem markaðirnir eru álitnir þola og mun þeim upplýsingum verða komið á framfæri við þá aðila sem þennan útflutning stunda. Ráðuneytið hefur enn fremur ákveðið að láta það fyrirkomulag, er í gildi hefur verið að undanförnu varðandi umsóknir um leyfi til útflutnings, gilda áfram þar til annað verður ákveðið. Engin leyfi til útflutnings á ofangreindum fisktegundum til Evrópulanda verða því veitt nema að umsókn hafi borist ráðuneytinu árdegis á föstudegi í næstu viku á undan þeirri sem útflutningur er fyrirhugaður í.``