Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá
upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.
1988--89. -- 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. --
349
. mál.
Nd.1034. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar (PP, ÁrnG, KH, GGÞ, ÞSk).
1. Við 1. gr. Í stað orðanna ,,hvern mann`` í 6. málsl. 2. efnismgr. komi: einstakling.
2. Við 4. gr. Greinin orðist svo:
. Lög þessi öðlast gildi 15. nóvember 1989 og koma til framkvæmda við álagningu gjalda á árinu 1990 vegna tekna á árinu 1989 og eigna í lok þess árs.