Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá
upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.
1988--89. -- 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. --
343
. mál.
Ed.1143. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 77 1. október 1981, um dýralækna, með síðari breytingum.
(Eftir 3. umr. í Nd., 10. maí.)
1. gr.
Við 2. gr. laganna, sbr. l. nr. 69/1982 og l. nr. 61/1985, bætist ný mgr. er verður 4. mgr. og orðast svo:
Landbúnaðarráðherra ákveður, að fengnum tillögum yfirdýralæknis, hvar héraðsdýralæknar hafa búsetu.
2. gr.
1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:
Auk dýralækna þeirra, sem um getur í 2. gr., skal vera einn yfirdýralæknir og skal hann vera ríkisstjórn til ráðuneytis um og hafa yfirumsjón með öllu er varðar heilbrigðismál búfjár og hollustuhætti við framleiðslu og meðferð búfjárafurða.
3. gr.
5. gr. laganna, sbr. 2. gr. l. nr. 61/1985, orðast svo:
Forseti skipar yfirdýralækni, héraðsdýralækna og dýralækni fisksjúkdóma. Skipun yfirdýralæknis skal lengst gilda til 6 ára í senn.
Ráðherra skipar þrjá dýralækna í nefnd er metur hæfni umsækjenda í stöðu héraðsdýralæknis og gerir tillögur til ráðherra um röð umsækjenda þegar fleiri en einn sækja. Einn nefndarmanna skal skipa eftir tilnefningu yfirdýralæknis, einn eftir tilnefningu Dýralæknafélags Íslands og einn án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Sömu aðilar tilnefna varamenn. Nefndin skal skipuð til þriggja ára í senn. Ráðherra setur nefndinni starfsreglur.
Dýralæknar skulu fá greiðslu fyrir störf sín og ferðir fyrir einstaklinga og hið opinbera samkvæmt gjaldskrá sem landbúnaðarráðherra setur, að fengnum tillögum stéttarfélags dýralækna, og er þeim óheimilt að taka hærri greiðslur fyrir störf sín en þar er kveðið á um.
Meðan ekki fást dýralæknar í hin lögákveðnu dýralæknisumdæmi og þegar nauðsyn krefur er héraðsdýralækni skylt, eftir ákvörðun ráðherra, að gegna dýralæknisstörfum í nágrannaumdæmi gegn hálfum byrjunarlaunum í því umdæmi.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Prentað upp.