Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Mánudaginn 16. október 1989


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 16. okt. 1989:

    ,,Eiður Guðnason, formaður þingflokks Alþfl., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem Jón Baldvin Hannibalsson utanrrh. er erlendis í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans beiðni með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþfl. í Reykjavík, Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Lára V. Júlíusdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og kjörbréf hennar verið rannsakað. Ég vil bjóða hana velkomna til þingstarfa.