Almannatryggingar
Þriðjudaginn 17. október 1989


     Flm. (Málmfríður Sigurðardóttir) :
     Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum. Flm. með mér eru Anna Ólafsdóttir Björnsson, Kristín Einarsdóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir.
    Frv. er endurflutt, var flutt á síðasta þingi. Það var flutt við nokkuð sérkennilegar aðstæður, að næturlagi, og voru þrír eða fjórir þingmenn viðstaddir í deildinni. Ég sé ekki ástæðu til að breyta neinu í því sem ég sagði þá til skýringar á frv. og þeir fáu þingmenn sem voru þá viðstaddir og kunna að vera viðstaddir nú hafa ekkert illt af að heyra það aftur og hinir sem ekki voru viðstaddir hafa bara gott af að heyra það.
    Við Íslendingar teljum okkar búa í velferðarþjóðfélagi og státum okkur af löggjöf sem tryggir hag þeirra sem minna mega sín, sjúkra, aldraðra og öryrkja. Og víst er það að reginmunur er á aðstöðu þeirra frá því sem var áður en almannatryggingum var komið á fót. Það má hins vegar lengi gera betur en vel, og sífellt eru að koma í ljós göt í þessu kerfi og jafnvel mismunun.
    Þingkonur Kvennalistans hafa á undanförnum árum lagt fram fjölmörg mál til endurbóta á tryggingalöggjöfinni og í þeim umræðum hefur þessum málum yfirleitt verið tekið vel og þá vísað til þess að nú starfi nefnd að endurskoðun á almannatryggingalögum og að þessum málum sé best fyrir komið innan þeirrar endurskoðunar. Þessi títtnefnda endurskoðun hefur hins vegar staðið yfir á annan áratug að mér er sagt og það gerast ýmsir langeygir eftir verkalokum þessarar nefndar, ekki síst þeir sem hafa bundið vonir við að fá leiðréttingar eða úrbætur á kjörum sínum í kjölfar þessa starfs.
    Lög um almannatryggingar sem nú eru í gildi kveða svo á að greiða megi maka elli- og örorkulífeyrisþega makabætur, allt að 80% af grunnlífeyri og tekjutryggingu, ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi. Við höfum kosið að binda þetta í lög.
    Nú er það svo að fleiri en makar kunna að hafa tekið að sér umönnun elli- eða örorkulífeyrisþega, t.d. börn, tengdabörn, skyldmenni eða jafnvel vandalausir sem eru á sama heimili og sá sem umönnunarinnar nýtur. Við kvennalistakonur teljum eðlilegt að sá sem annast elli- eða örorkulífeyrisþega og getur ekki af þeim sökum stundað vinnu sér til framfæris hljóti einhverjar bætur vegna þess eða aðstoð og við kjósum að nefna þetta umönnunarbætur.
    Sú stefna hefur að undanförnu rutt sér til rúms að rétt sé að elli- og örorkulífeyrisþegar njóti aðhlynningar í heimahúsum svo lengi sem fært er og svo lengi sem þeir óska. Flestir una sér best og líður best á eigin heimili og í því umhverfi sem þeir hafa vanist.
    Örorka fólks er af mismunandi orsökum og aðstaða þeirra sem annast þá er mjög breytileg. Nefna má dæmi um móður sem er bundin við gæslu á þrítugum geðsjúkum syni sínum. Hann er ekki ,,nógu veikur`` til að fá inni á stofnun en þarf þó stöðuga gæslu. Hann

hefur fullar örorkubætur og á þeim verða þau bæði að lifa því hún getur ekki stundað vinnu og er algerlega bundin við að gæta hans. Flestir ættu að geta skilið hvílík kjör þessu fólki eru búin og alls staðar er komið að luktum dyrum hjá því opinbera ef leitað er eftir stuðningi. Kerfið nær ekki til fólks sem lifir við slíkar aðstæður og það má nefna fleiri dæmi um það.
    Það er kostnaðarsamt fyrir ríkissjóð að vista einstakling á elliheimili eða sjúkrastofnun. Daggjald fyrir einstakling á elliheimili var 1. jan. 1989 1593 kr. og daggjald á hjúkrunarstofnun allt frá 2799 kr. þar sem það var lægst og 6353 kr. þar sem það var hæst. 1. jan. sl. voru 80% af grunnlífeyri og tekjutryggingu 22.030 kr. á mánuði eða um 735 kr. á dag. Af þessum tölum má sjá að þó að almannatryggingar greiddu aðstandendum slíka upphæð, þessi 80% af grunnlífeyri og tekjutryggingu, vegna umsjár einstaklings sem annars yrði að vera á stofnun, þá sparaðist ríkinu samt sem áður mikið fé. Oft og tíðum leggur fólk hart að sér við að hafa ellihruma eða farlama ættingja í heimahúsum. Við teljum sanngirnismál að hið opinbera komi til móts við þá og því höfum við lagt fram hér á hinu háa Alþingi frv. um að 13. gr. almannatryggingalaganna orðist svo:
    ,,Maki eða annar heimilisfastur einstaklingur, sem annast elli- eða örorkulífeyrisþega og getur af þeim sökum ekki stundað vinnu utan heimilis, á rétt á umönnunarbótum er nemi allt að 80% af grunnlífeyri og tekjutryggingu.
    Sá sem annast hefur elli- eða örorkulífeyrisþega í a.m.k. fimm ár samfleytt getur við lát hans eða lok umönnunar öðlast rétt til lífeyris hliðstæðs ekkjulífeyri njóti hann ekki greiðslna frá lífeyrissjóði eða Tryggingastofnun ríkisins og sé af einhverjum ástæðum ekki fær um að stunda vinnu utan heimilis.
    Hafi einstaklingur ekki getað stundað vinnu vegna umönnunar elli- eða örorkulífeyrisþega samfleytt undanfarin fimm ár á hann rétt á styrk til starfs- eða endurmenntunar samkvæmt mati tryggingaráðs, í því skyni að fá atvinnu á ný til að framfleyta sér þegar umönnunarstarfi lýkur.``
    ,,Foreldraekkjur`` nefna Norðmenn uppkomið fólk sem hefur búið heima og hugsað um sjúka eða fatlaða foreldra eða foreldri sem ekki getur komist af án hjálpar. Yfirleitt eru þetta konur. Við lát foreldris eða umönnunarlok af öðrum ástæðum, svo sem vistunar á sjúkrastofnun, er þetta fólk tíðum mjög illa sett í lífsbaráttunni. Algengt er til sveita að þessar ,,foreldraekkjur`` sitji á jörð sem hefur lítinn sem engan fullvirðisrétt og er því verðlítil eða verðlaus eign og jafnvel komin í niðurníðslu. Yfirleitt eru þetta fullorðnar konur og ógiftar og ekki færar um að reka búskap án aðstoðar. Þær hafa oftar en ekki einangrast inni á heimilinu við einhæf störf og treysta sér ekki út á almennan vinnumarkað vegna ókunnugleika á launuðum störfum en eru ekki komnar á ellilífeyrisaldur og heilsu þeirra kannski ekki heldur þannig háttað að þær hafi örorkustyrk. En þær lenda milli stafs og hurðar í kerfinu þrátt fyrir að þær með

umönnunarstörfum sínum hafi án efa sparað ríkinu stórfé. Þessu frumvarpi er ætlað að rétta hlut þessara einstaklinga og veita störfum þeirra viðurkenningu.
    Ákvæði um styrki til starfs- eða endurmenntunar til handa þeim sem langtímum saman hafa verið bundnir innan heimilis við umönnun sjúkra, aldraðra eða öryrkja eru til að auðvelda þeim að framfleyta sér af eigin rammleik. Við samningu frumvarpsins hefur verið stuðst við norsk tryggingalög og tekið mið af því hvernig þar er staðið að bótum til þeirra sem frumvarpinu er ætlað að ná til.
    Ég hef þessi orð ekki fleiri að sinni en að lokinni umræðu, herra forseti, vil ég mælast til að þessu frv. verði vísað til heilbr.- og trn.