Erfðafjárskattur
Þriðjudaginn 24. október 1989


     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um erfðafjárskatt, nr. 83/1984.
    Fulltrúar Norðurlandaþjóðanna hafa nýlega undirritað samning til að komast hjá tvísköttun arfs og gjafafjár. Fyrir hönd Íslands hefur annast þessa samningsgerð Ragnar Hall borgarfógeti.
    Til þess að hægt sé að ganga með formlegum hætti frá þessum samningi milli Norðurlandaþjóðanna til að komast hjá tvísköttun arfs þarf að gera þá breytingu á lögum um erfðafjárskatt sem hér er lögð til.
    Í núgildandi lögum um erfðafjárskatt er ekki sérstök lagaheimild fyrir ríkisstjórnina til að fullgilda slíka samninga svo sem er í gildandi lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Í frv. er lagt til að ríkisstjórnin fái almenna heimild til að gera slíka samninga við önnur ríki.
    Hin breytingin sem lögð er til er sú að skattur samkvæmt lögum um erfðafjárskatt verði greiddur hérlendis vegna eigendaskipta fasteigna á grundvelli lögerfða, bréferfða eða fyrirframgreiðslu arfs. Í núgildandi lögum er ákvæði um að skattur sé greiddur af fasteignum sem eigendaskipti verða að ef hann er ekki innheimtur erlendis vegna búskipta þar. Þetta er óvanalegt ákvæði sem sett var inn vegna tvísköttunartilvika. Breytingin sem lögð er til er í samræmi við það sem tíðkast innan OECD-landa.
    Framkvæmdin nú á þessu ákvæði er þannig að ef eigandi fasteignar á Íslandi er búsettur erlendis og búskipti verða þar á ríkissjóður ekki tilkall til erfðafjárskatts af eigninni. Breytingin sem nú er gerð felst í því að skattlagningarrétturinn verði hjá því ríki þar sem fasteignin er staðsett óháð því hvar búskipti fara fram. Stefnt er að því að aðildarríki Norðurlandasamningsins fullgildi tvísköttunarsamninginn um erfðafjárskatt þannig að honum verði beitt um dánarbú þeirra sem falla frá 1. jan. 1990 og síðar.
    Þessi norræni samningur öðlast gildi 30 dögum eftir að öll ríki hafa tilkynnt um að hann hafi verið staðfestur. Það er því mikilvægt að nauðsynleg formskilyrði liggi fyrir sem allra fyrst þannig að gildistaka geti átt sér stað 1. jan. nk. eins og að er stefnt. Ég fer því þess á leit við hv. Alþingi að það greiði götu þess að frv. geti orðið að lögum sem allra fyrst um leið og ég legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og, eins og venjan hefur verið með breytingar á lögum um erfðafjárskatt, að því verði vísað til hv. félmn.