Karl Steinar Guðnason:
Hæstv. forseti. Ég tel að hv. síðasti ræðumaður sé beinlínis að snúa út úr því sem ég sagði hér áðan og vil að það komi fram. Ég benti á það eða spurði ráðherra að því, sem reyndar var ekki svarað, að forustumenn samtakanna hafa verið með í öllum þessum undirbúningi og þeir vissu betur um þennan undirbúning en komið hafði fram bæði í fjölmiðlum og annars staðar frá þeim.