Höfundaréttargjald af innfluttum myndbandsspólum
Fimmtudaginn 02. nóvember 1989


     Hreggviður Jónsson:
    Hæstv. forseti. Ég ætla að fara fram á það við hæstv. menntmrh. að það verði kannað með höfundarrétt að myndböndum og segulböndum hvort ég muni nú ekki eiga höfundarrétt að þögninni, en eins og allir vita, þá stóð ég hér áður í þessum ræðustól og þagði eins og frægt er orðið. Og nú held ég því fram að ég eigi höfundarrétt að þögninni þar sem höfundarréttur er lagður á og vil fara fram á það að hann sjái um að greiðslur berist mér skjótt.