Heilsufarsbók
Fimmtudaginn 02. nóvember 1989


     Flm. (Guðrún Agnarsdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um heilsufarsbók sem er endurflutt mál. Það var flutt hér á síðari hluta síðasta þings, en náði þá ekki afgreiðslu. Auk mín eru flm. aðrar þingkonur Kvennalistans, þær Anna Ólafsdóttir Björnsson, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Málmfríður Sigurðardóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir. Tillagan er svohljóðandi, með leyfi forseta:
    ,,Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra í samráði við landlækni að láta hanna heilsufarsbók sem fylgi hverjum einstaklingi frá vöggu til grafar.
    Í heilsufarsbókina skulu skráðar jafnóðum allar þær upplýsingar um heilsufar einstaklingsins sem máli skipta, svo sem sjúkdómar, læknismeðferð og lyfjanotkun.``
    Á undanförnum árum og áratugum hefur það farið vaxandi að skrá og varðveita ýmsar upplýsingar um heilsufar einstaklinga. Þessar upplýsingar er langoftast að finna hjá heimilis- eða heilsugæslulækni hvers einstaklings, en einnig hjá sjúkrahúsum eða öðrum rannsókna- eða meðferðarstofnunum. Þrátt fyrir aukna tækni á tölvuöld er þó skipulag á þessum upplýsingum með ýmsum hætti og oft þarf víða að leita fanga til þess að fá heildarupplýsingar um heilsufar hvers einstaklings. Allt of sjaldan hefur sjúklingurinn sjálfur yfirsýn yfir eigin heilsufar, tímasetningu og niðurstöðu rannsókna og læknismeðferðar sem hann hefur fengið, t.d. bólusetningar barna og fullorðinna, lyfjagjöf, skurðaðgerðir og margt fleira. Þetta viðheldur vankunnáttu almennings og er ekki í samræmi við stefnu heilbrigðisyfirvalda sem hvetur til aukinna forvarna og frumkvæðis einstaklinga til að taka ábyrgð á eigin heilsugæslu.
    Til þess að svo gæti orðið þarf aukna og skipulega heilbrigðisfræðslu, bæði í skólum og meðal almennings. En fræðslan ein sér nægir þó ekki til að tryggja það að einstaklingar taki ábyrgð á eigin heilsuvernd. Þeim verður jafnframt að vera það kleift efnahagslega og félagslega að velja sér lifnaðarhætti í samræmi við þá heilbrigðisfræðslu sem stunduð er og vissulega þá heilbrigðisstefnu sem mótuð er af stjórnvöldum hverju sinni.
    Stjórnvöld hafa mikilvægu hlutverki að gegna í þessum efnum. Þeim ber t.d. að samstilla ýmsa þætti stjórnsýslunnar þannig að þeir verði samvirkir til að ná markmiðum heilbrigðisfræðslu.
    Einn þáttur þess að auka hlutdeild almennings í eigin heilsuvernd er að gefa fólki kost á því að skrá í eina bók allt það sem viðkemur heilsufari þess. Upplýsingarnar eru þannig í fórum einstaklingsins eða umsjáraðila hans allt frá vöggu til grafar auk þess sem þær er að finna hjá viðkomandi aðilum heilbrigðisþjónustunnar.
    Heilsufarsbækur hafa verið notaðar meðal ýmissa annarra þjóða um nokkurt skeið með góðum árangri. Slíkt skipulag eykur vitneskju einstaklingsins um eigið heilbrigði og heilsufar og skírskotar jafnframt til ábyrgðar og hvetur til þátttöku. Heilsufarsbók er því

í fyllsta samræmi við yfirlýst markmið og stefnu heilbrigðisyfirvalda.
    Ég hef síðan í fórum mínum eintak af slíkri heilsufarsbók sem mér hefur áskotnast frá Frakklandi og hefði fullan hug á því að færa það nefndinni sem fær þetta mál til umfjöllunar. Að lokinni umræðu legg ég til að þessu máli verði vísað til hv. allshn. Sþ.