Staða íslensks skipaiðnaðar
Fimmtudaginn 02. nóvember 1989


     Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Ég vil aðeins vekja athygli á því að hæstv. ráðherra Hagstofu Íslands hefur lýst yfir mjög djúpum ágreiningi innan ríkisstjórnarinnar varðandi skipasmíðaiðnað. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því að hæstv. forsrh. er staddur hér í þingsalnum og ég vil enn fremur vekja athygli hæstv. forseta á því að mér finnst eðlilegt að hæstv. forsrh. segi skoðun sína á ummælum hæstv. ráðherra Hagstofu Íslands. ( Forseti: Forseti vill geta þess að það fer aldrei fram hjá henni þegar hæstv. forsrh. er í salnum.)