Greiðslur til framfærenda fatlaðra
Fimmtudaginn 09. nóvember 1989


     Fyrirspyrjandi (Anna Ólafsdóttir Björnsson):
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir svarið. Eins og fram kom í svari hennar hefur þetta heimildarákvæði verið túlkað fremur þröngt. Því langar mig að vekja máls á því, án þess að ég ætlist til þess að því verði svarað ítarlega, í hver hús þeir eiga að venda sem sótt hafa um að fá greitt skv. þessu ákvæði, en ekki fengið. Hér mun vera um einhvern hóp að ræða og er því forvitnilegt að vita hverra kosta það fólk á völ.