Innheimta söluskatts af tryggingaiðgjöldum
Mánudaginn 13. nóvember 1989


     Jóhann Einvarðsson:
    Hæstv. forseti. Ég vil einungis þakka hæstv. fjmrh. fyrir svör hans og tel að hann hafi notað þennan tæpa hálfa mánuð sem hann hefur haft til heimalestursins vel og komist að réttri niðurstöðu í málinu og það var megintilgangurinn með þessari ósk um utandagskrárumræðu hér að fá þetta fram.