Skráningarkerfi bifreiða
Mánudaginn 13. nóvember 1989


     Flm. (Árni Johnsen):
    Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. síðasta ræðumanni fyrir góðar undirtektir. Ég held að það séu æðimargir sem vilja taka á þessu máli. Þó að það sé ekki stórt í sjálfu sér, þá er það smekksatriði og nokkurt tilfinningaatriði fyrir allmarga landsmenn. Og ég held að þessi till. sem hér er lögð fram opni ákveðinn möguleika til þess að taka málið upp með það fyrir augum að finna farveg sem er ásættanlegur og skynsamlegur, og mér líst ágætlega á þá hugmynd sem hv. síðasti ræðumaður vakti upp. Þetta er spurning um að útfæra ákveðna hluti sem þeir mundu gera sem best þekkja til í þeim efnum. Ég vil ítreka þakkir fyrir jákvæðar undirtektir.