Karvel Pálmason:
Virðulegi forseti. Það er auðvitað ekki hægt í fyrirspurnatíma að ræða mál af neinu viti, en hér er komið upp eitt af mörgum þeim málum sem koma fram í dagsljósið þegar til framkvæmda kemur á verkaskiptingarlögunum. Það er enginn vafi á því að mörg mál af þessu tagi eða svipuðu eiga eftir að koma upp.
En það sem varð til þess að ég kom hér upp í ræðustól er að mér heyrðist á hæstv. ráðherra að hann fullyrti að verulegur hluti af starfsfólki hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur mundi lækka í launum. Nú hélt ég að það væri liðin tíð að það væri hægt að framkvæma slíkar aðgerðir. Ég sé hér í Dagblaðinu í gær að það er fullyrt að þetta muni þýða 14--20% launalækkun hjá velflestum í þessu starfi. Ef þetta er forsmekkurinn af því sem koma skal að því er varðar skiptinguna á milli ríkis og sveitarfélaga þá held ég nú að margir muni fara að hugsa sinn gang hvernig það mál mun verða til enda leitt. Ég a.m.k. mótmæli slíku.
Ég hef verið viðloðandi verkalýðshreyfinguna í yfir 30 ár og það eru þá ný tíðindi fyrir mér ef hér á að ganga undan í þeim efnum að skerða laun með verulegum hætti eins og hér er boðað. Vonandi hef ég misheyrt hjá hæstv. ráðherra, en í Dagblaðinu í gær er þetta fullyrt og ég vænti þess þá að hæstv. ráðherra leiðrétti ef ég hef misheyrt hans ræðu í þessum efnum.