Happdrætti Háskóla Íslands
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Virðulegi forseti. Fjárlagafrv. er að sjálfsögðu fjárlagafrv. ríkisstjórnarinnar. Í öðru lagi er það rétt hjá hv. 2. þm. Reykv. að það hefur þegar verið tekin ákvörðun um það að þetta samkomulag verði fært til bókar í afrekaskrá menntmrn. og verður gefið út og myndatextinn hljóðar svo: Samkomulag um að nýta hluta af ráðstöfunarfé Happdrættis Háskóla Íslands til Þjóðarbókhlöðu.