Glasafrjóvganir á Landspítalanum
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Hjörleifur Guttormsson:
    Virðulegur forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að vekja máls á þessu hér. Hún hefur einnig flutt till. til þál. sem er þýðingarmikið innlegg inn í þetta mál og er nú til meðferðar í þinginu þar sem gert er ráð fyrir löggjöf varðandi þessi efni og það verður athugað í þingnefnd sem hefur málið með höndum.
    Mér fannst síðasti hv. ræðumaður hins vegar ekki hitta naglann á höfuðið í seinni huta ræðu sinnar hér áðan, en geri það að öðru leyti ekki að umtalsefni.